Drónar og þyrluflug

Reglur og tilmæli vegna fjarstýrðra loftfara og þyrluflugs á friðlýstum svæðum

Umhverfisstofnun vekur athygli á að á eftirfarandi svæðum er notkun ómannaðra og mannaðra loftfara takmörkuð og/eða óheimil nema með leyfi Umhverfisstofnunar. Sótt er um leyfi til notkunar ómannaðra/mannaðra loftfara á vef Umhverfisstofnunar. Undanskilið banninu eru leitar- og björgunaraðgerðir og starfsemi Landhelgisgæslunnar og annara stofnana sem sinna lögbundnum rannsóknum og eftirlitshlutverki með náttúru- og menningarminjum.

Umhverfistofnun bendir sérstaklega á að ávallt er óheimilt að fljúga dróna yfir mannfjölda og að drónar sem notaðir eru í atvinnuskyni þarf að skrá sérstaklega hjá Samgöngustofu. Tryggja skal að notkunin skaði ekki fólk og dýr eða valdi tjóni á eignum og gæta skal þess að trufla ekki upplifun annara gesta. Að öðru leyti skal haga notkun dróna í samræmi við reglugerð nr. 990/2017, um starfrækslu fjarstýrðra loftfara. 

Notkun fjarstýrðra loftfara er óheimil innan friðlandsins nema að fengnu leyfi frá Umhverfisstofnun.

Óheimilt er að fara í eynna nema með leyfi Umhverfisstofnunar.

Notkun ómannaðra loftfara er óheimil á Kistufirði, út fyrir Kistuhöfða og Grjóteyrarklakk.

Flug ómannaðra loftfara er óheimilt.

Flug fjarstýrðra loftfara (dróna) er óheimilt í friðlandinu á varptíma og fartíma, nema að fengnu leyfi Umhverfisstofnunar.

Notkun fjarstýrðra loftfara er óheimil innan náttúruvættisins nema að fengnu leyfi frá Umhverfisstofnun.

Notkun fjarstýrðra loftfara er óheimil innan verndarsvæðisins nema að fengnu leyfi Umhverfisstofnunar.

Umferð ómannaðra loftfara er bönnuð nema með leyfi Umhverfisstofnunar.

1. maí – 15. september

Óheimilt er að fljúga fjarstýrðum loftförum (drónum) innan náttúruvættisins á tímabilinu 1. maí – 15. september nema að fengnu leyfi Umhverfisstofnunar. Undanþágur frá banninu eru ekki veittar fyrir neðan Dynjandisveg.

16.september – 30.apríl

Heimilt er að fljúga fjarstýrðum loftförum (drónum) innan náttúruvættisins á tímabilinu 16. september – 30. apríl án leyfis Umhverfisstofnunar.

Flug fjarstýrðra loftfara er óheimilt innan náttúruvættisins nema að fengnu leyfi Umhverfisstofnunar.

1. maí - 15. ágúst

Umhverfisstofnun veitir ekki leyfi fyrir notkun fjarstýrðra loftfara á varptíma og á meðan ungar dvelja í hreiðrum.

Flug ómannaðra loftfara er óheimilt í friðlandinu nema að fengnu leyfi Umhverfisstofnunar. Ekki er veitt leyfi á lokunartíma friðlandsins.

15. apríl – 15. júlí

Öll umferð um friðlandið er óheimil.

15. júní -15. september

Óheimilt er að fljúga fjarstýrðum loftförum innan friðlandsins á tímabilinu 1. maí – 15. september nema að fengnu leyfi Umhverfisstofnunar. Undanþágur frá banninu eru ekki veittar í Landmannalaugum, Landmannahelli og Hrafntinnuskeri.

Óheimilt er að lenda þyrlum og öðrum mönnuðum loftförum á svæði 1. Þar eru ekki veittar undanþágur til lendingar.

Óheimilt er að lenda flugvélum innan friðlandsins nema að fengnu leyfi Umhverfisstofnunar.

Flug fjarstýrðra loftfara er óheimilt yfir friðlandinu nema með leyfi Umhverfisstofnunar.

Óheimilt er að lenda þyrlum og öðrum mönnuðum loftförum innan friðlandsins nema að fengnu leyfi Umhverfisstofnunar.

Lendingar mannaðra loftfara í atvinnuskyni innan verndarsvæðisins eru óheimilar nema með leyfi landeiganda og Umhverfisstofnunar.

Flug fjarstýrðra loftfara er óheimilt yfir svæðinu nema með leyfi Umhverfisstofnunar.

1. apríl - 31. október kl. 8:00-10:00

Heimilt að fljúga fjarstýrðu loftfari án sérstaks leyfis Umhverfisstofnunar kl. 8:00-10:00. Þessi undanþága á ekki við vegna flugs ómannaðra loftfara í atvinnuskyni. Óheimilt er að fljúga undir 50m hæð yfir Strokki.

1. nóvember - 31. mars kl. 11:00-12:00

Heimilt að fljúga fjarstýrðu loftfari án sérstaks leyfis Umhverfisstofnunar kl. 11:00-12:00. Þessi undanþága á ekki við vegna flugs ómannaðra loftfara í atvinnuskyni. Óheimilt er að fljúga undir 50m hæð yfir Strokki.
Óheimilt er að lenda þyrlum og öðrum mönnuðum loftförum innan svæðisins nema að fengnu leyfi Umhverfisstofnunar.

Umferð loftfara (t.d. þyrluflug) sem truflað gæti gesti og dýralíf er óheimil án sérstaks leyfis Umhverfisstofnunar.

Flug fjarstýrðra loftfara er óheimilt innan náttúruvættisins nema að fengnu leyfi Umhverfisstofnunar.

1. apríl - 31. október kl. 8:00-10:00

Heimilt að fljúga fjarstýrðu loftfari án sérstaks leyfis Umhverfisstofnunar kl. 8:00-10:00. Þessi undanþága á ekki við vegna flugs ómannaðra loftfara í atvinnuskyni.

1. nóvember - 31. mars kl. 11:00-12:00

Heimilt að fljúga fjarstýrðu loftfari án sérstaks leyfis Umhverfisstofnunar kl. 11:00-12:00. Þessi undanþága á ekki við vegna flugs ómannaðra loftfara í atvinnuskyni.

Notkun ómannaðra loftfara er óheimil nema með leyfi Umhverfisstofnunar. Þyrlum og öðrum mönnuðum loftförum skal aldrei lenda innan friðlandsins, nema að fengnu leyfi frá Umhverfisstofnun.

1. apríl - 31. október kl. 8:00-10:00

Heimilt að fljúga fjarstýrðu loftfari án sérstaks leyfis Umhverfisstofnunar kl. 8:00-10:00. Þessi undanþága á ekki við vegna flugs ómannaðra loftfara í atvinnuskyni.

1. nóvember - 31. mars kl. 11:00-12:00

Heimilt að fljúga fjarstýrðu loftfari án sérstaks leyfis Umhverfisstofnunar kl. 11:00-12:00. Þessi undanþága á ekki við vegna flugs ómannaðra loftfara í atvinnuskyni.

Notkun fjarstýrðra loftfara er óheimil innan fólkvangsins nema að fengnu leyfi frá Umhverfisstofnun.

Óheimilt er að nota ómönnuð loftför innan friðlandsins nema með leyfi Umhverfisstofnunar.

1. maí - 15. ágúst

Umhverfisstofnun veitir ekki leyfi fyrir notkun fjarstýrðra loftfara á varptíma við fuglabjörg og öðrum viðkvæmum varpsvæðum og á meðan ungar dvelja í hreiðrum.

Óheimilt er að lenda þyrlum innan friðlandsins, nema að fengnu leyfi Umhverfisstofnunar.
Óheimilt er að lenda flugvélum innan friðlandsins utan lendingarstaða sem skilgreindir eru samkvæmt aðalskipulagi Ísafjarðabæjar 2008-2020, nema að fengnu leyfi Umhverfisstofnunar.

Notkun ómannaðra loftfara er óheimil nema með leyfi Umhverfisstofnunar.

15. apríl - 31. júlí

Umhverfisstofnun veitir ekki leyfi fyrir notkun ómannaðra loftfara á varptíma.

Flug fjarstýrðra loftfara er óheimilt innan friðlandsin nema að fengnu leyfi Umhverfisstofnunar.

1. maí - 15. ágúst

Umhverfisstofnun veitir ekki leyfi fyrir notkun fjarstýrðra loftfara á varptíma og á meðan ungar dvelja í hreiðrum.

Óheimilt er að nota fjarstýrð loftför innan friðlandsins nema með leyfi Umhverfisstofnunar

1. maí - 15. ágúst

Umhverfisstofnun veitir ekki leyfi fyrir notkun fjarstýrðra loftfara á varptíma og á meðan ungar dvelja í hreiðrum.

Notkun fjarstýrðra loftfara er óheimil innan náttúruvættisins Stórurð nema að fengnu leyfi Umhverfisstofnunar.

Óheimilt er að lenda þyrlum og öðrum mönnuðum loftförum innan verndarsvæðisins utan skilgreindra lendingarstaða nema að fengnu leyfi Umhverfisstofnunar.

Flug ómannaðra loftfara er óheimilt í friðlandinu á varptíma, frá 20. maí til 20. ágúst, nema að fengnu leyfi Umhverfisstofnunar.

Flug fjarstýrðra loftfara er óheimilt innan friðlandsin nema að fengnu leyfi Umhverfisstofnunar.

1. maí - 15. ágúst

Umhverfisstofnun veitir ekki leyfi fyrir notkun fjarstýrðra loftfara á varptíma og á meðan ungar dvelja í hreiðrum.

Notkun fjarstýrðra loftfara og þyrlna óheimil nema að fengnu leyfi Umhverfisstofnunar.

Óheimilt er að fara í friðlandið allt árði nema með leyfi Umhverfisstofnunar en það er háð ströngum takmörkunum.

Notkun fjarstýrðra loftfara er óheimil í náttúruvættum (Gjáin, Háifoss og Granni og Hjálparfoss) nema að fengnu leyfi Umhverfisstofnunar.

Óheimilt er að lenda þyrlum innan náttúruvætta nema með sérstöku leyfi Umhverfisstofnunar.

Notkun fjarstýrðra loftfara er óheimil innan fólkvangsins nema að fengnu leyfi frá Umhverfisstofnun.

Notkun fjarstýrðra loftfara er óheimil innan friðlandsins nema að fengnu leyfi frá Umhverfisstofnun.

15. apríl – 15. september

Óheimilt er að fljúga fjarstýrðum loftförum (drónum) innan þjóðgarðsins nema að fengnu leyfi Umhverfisstofnunar. Bannið gildir frá ströndinni og neðan Útnesvegar. Umhverfisstofnun veitir ekki leyfi fyrir notkun fjarstýrðra loftfara á varptíma við fuglabjörg og öðrum viðkvæmum varpsvæðum og á meðan ungar dvelja í hreiðrum.

Aðeins er heimilt að lenda þyrlum á skilgreindum lendingarstöðum innan þjóðgarðsins en þá er að finna í stjórnunar- og verndaráætlun þjóðgarðsins.

Hvers konar atvinnustarfsemi og samkomuhald er óheimilt í þjóðgarðinum, nema til komi sérstakt leyfi Umhverfisstofnunar.

10. maí til 10. ágúst

Flug loftfara er óheimilt undir 5000 fetum.

1. maí - 20. júní

Umferð um og í nálægð við varplönd heiðagæsa bönnuð

Á friðlýstum búsvæðum fugla skal höfð sérstök aðgát, skv. 4. mgr. 17. gr náttúruverndarlaga nr. 60/2013. Hvort leyfi þurfi á eftirfarandi stöðum er háð árstíð sem og umfangi og tegund verkefnis. Hafa skal samband við Umhverfisstofnun ust@ust.is fyrir frekari upplýsingar.

  • ­­Eldey - Óheimilt er að fara í eyna án leyfis Umhverfisstofnunar
  • ­­Friðland Svarfdæla
  • ­Grótta - Friðlandið er lokað 1. maí-15. júlí
  • ­Grunnafjörður
  • ­Guðlaugstungur
  • ­Hrísey í Reykhólahreppi - Óheimilt er að fara í eyna 15. apríl - 15. júlí án leyfis Umhverfisstofnunar
  • ­­­­Melrakkaey - Óheimilt er að fara í eyna án leyfis Umhverfisstofnunar
  • ­Mývatn og Laxá
  • ­Oddaflóð
  • ­Salthöfði og Salthöfðamýrar - Ekki má nota vélknúin tæki í friðlandinu nema í sambandi við hefðbundna nýtingu þess.
  • ­Skrúður - Óheimilt er að fara í eyna án leyfis Umhverfisstofnunar
  • ­­Vestmannsvatn 

Umhverfisstofnun vekur athygli á að notkun ómannaðra loftfara getur verið háð leyfi innan Vatnajökulsþjóðgarðar og á Þingvöllum. Sótt er um leyfi á heimasíðum þjóðgarðanna. 

Frekari fyrirspurnir varðandi notkun ómannaðra loftfara á friðlýstum svæðum skulu sendast á ust@ust.is.

Umhverfisstofnun vill benda á að á öllum svæðum gilda almennar reglur um notkun ómannaðra loftfara. Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið hefur sett reglugerð nr. 990/2017 um starfrækslu fjarstýrðra loftfara. Þar eru settar reglur með það að markmiði að tryggja flugöryggi og öryggi og réttindi borgaranna. Reglugerðin tók gildi 15. desember 2017 og gildir um flug fjarstýrðra loftfara á Íslandi og innan íslenskrar lofthelgi. Undanþegin eru loftför sem vega minna en 250 g. Á  vef Samgöngustofu má sjá helstu atriði reglugerðarinnar.