Stök frétt

Umhverfisstofnun auglýsir framlengingu á starfsleyfi Reykjagarðs hf., Ásmundarstöðum Ásahreppi, sem gildir fyrir þéttbæru eldi alifugla, allt að 156.000 fuglastæðum holdakjúklinga og 23.000 fuglastæðum stofnhæna. 

Umhverfisstofnun er heimilt að framlengja starfsleyfi rekstaraðila í samræmi við 4. mgr. 6. gr. laga 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir. Framlengingin á starfsleyfi er heimil til eins árs og mun gilda til 23. september 2023, eða þar til nýtt starfsleyfi hefur verið gefið út.

Athugasemdir við að leyfið sé framlengt skulu vera skriflegar og sendar Umhverfisstofnun (ust@ust.is) merkt UST202203-112. Frestur til að skila inn athugasemdum er til og með 18. september 2022.

Hér er hægt að skoða starfsleyfið sem framlengja á.