Stök frétt

Mynd tekin af vef Íslenska kalkþörungafélagsins
Umhverfisstofnun hefur unnið tillögu að starfsleyfi fyrir Íslenska kalkþörungafélagið ehf. til framleiðslu á allt að 120.000 tonnum árlega af kalki og öðrum kalkafurðum, en núverandi starfsleyfi, sem gefið var út 2018, heimilar framleiðslu á allt að 85.000 tonnum.

Umhverfisstofnun stefnir að því að halda rafrænan kynningarfund um tillöguna á auglýsingartímanum sem verður auglýstur síðar.

Athugasemdir við starfsleyfistillöguna skulu vera skriflegar og sendar Umhverfisstofnun. Frestur til að skila inn athugasemdum er til og með 14. desember 2020. Greinargerð mun fylgja starfsleyfi við útgáfu sbr. 6. gr. reglugerðar nr. 550/2018.

Tenglar og fylgigögn:
Starfsleyfistillaga
Almenn umsókn um starfsleyfi
Ákvörðun um matsskyldu frá Skipulagsstofnun