Stök frétt

Umhverfisstofnun auglýsir framlengingu á starfsleyfi Bleikju ehf. Laugum sem gildir fyrir fiskeldi og seiðaeldi annað en sjóeldi, allt að 20 tonna ársframleiðslu. Umhverfisstofnun er heimilt að framlengja starfsleyfi rekstaraðila í samræmi við 4. mgr. 6. gr. laga 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir. Framlengingin á starfsleyfi er heimil til eins árs og mun gilda til 16. júní 2023 eða þar til nýtt starfsleyfi hefur verið gefið út.

Athugasemdir við að leyfið sé framlengt skulu vera skriflegar og sendar Umhverfisstofnun (ust@ust.is) merkt UST202206-106. Frestur til að skila inn athugasemdum er til og með 13. júlí 2022.

Hér er hægt að skoða starfsleyfið sem framlengja á.