Stök frétt

Umhverfisstofnun hefur gefið út losunarleyfi fyrir Sameinað sílikon hf., kt.660214-1190, Stakksbraut 9 í Helguvík. Leyfið veitir Sameinuðu sílikoni leyfi til losunar á gróðurhúsalofttegundum, í samræmi við I.viðauka laga nr.70/2012 um loftslagsmál og heimild til að sækja um úthlutun á endurgjaldslausum losunarheimildum.

Rekstraraðilar er falla undir viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir ber að hafa losunarleyfi, vakta losun frá starfstöð sinni og skila árlega vottaðri skýrslu um losun gróðurhúsalofttegund frá starfstöð sinni.

Samhliða útgáfu losunarleyfis hefur Umhverfisstofnun samþykkt vöktunaráætlun Sameinaðs sílikons hf. þar sem fram kemur hvernig losun gróðurhúsalofttegunda frá starfseminni skuli vöktuð.

Fyrir liggur starfsleyfi Sameinaðs sílikons hf. dagsett 21. október 2015.  Losunarleyfið öðlast þegar gildi og er ótímabundið, en skal vera endurskoðað af Umhverfisstofnun eigi sjaldnar en á fimm ára fresti og gera á því breytingar, ef þörf er.