Stök frétt

Umhverfisstofnun hefur borist umsókn um starfsleyfi frá Fjallableikju ehf. að Hallkelshólum. Um er að ræða framleiðsluaukningu úr 20 tonnum á ári í 100 tonn af bleikju í landeldi. Unnið er úr umsókn og að gerð starfsleyfistillögu.

Tillaga að starfsleyfi verður auglýst opinberlega þegar hún liggur fyrir og gefst þá öllum tækifæri að koma með athugasemdir áður en ákvörðun um útgáfu starfsleyfisins verður tekin.