Stök frétt

Umhverfisstofnun hefur móttekið umsókn Ævintýradalsins ehf. um starfsleyfi vegna landeldis á bleikju í Heydal, Súðavíkurhreppi.

Í framhaldi verður unnin tillaga að starfsleyfinu og gert er ráð fyrir að hún verði auglýst í fjórar vikur þegar hún liggur fyrir. 

Öllum gefst tækifæri til að koma með athugasemdir á auglýsingatíma áður en ákvörðun um útgáfu starfsleyfisins verður tekin.