Stök frétt

Myndin er fengin úr gögnum frá Olíudreifingu ehf
Umhverfisstofnun hefur móttekið umsókn um endurnýjun á starfsleyfi Olíudreifingar ehf. fyrir starfsstöð þeirra í Örfirisey.
Á næstunni verður unnin tillaga að starfsleyfi og í framhaldinu er gert ráð fyrir að hún verið auglýst í fjórar vikur. 

Öllum gefst tækifæri til að koma með athugsemdir á auglýsingatíma áður en ákvörðun um útgáfu starfsleyfisins verður tekin.