Stök frétt

Mynd: Jeremy Bishop - Unsplash

Umhverfisstofnun hefur tekið ákvörðun um útgáfu á endurnýjuðu starfsleyfi fyrir Ögg ehf. í Hjaltadal. Um er að ræða landeldi á bleikju með allt að 12 tonna hámarkslífmassa á hverjum tíma.

Tillaga að starfsleyfi var auglýst á tímabilinu 3. apríl til og með 2. maí 2023 þar sem hægt var að koma með athugasemdir vegna hennar. Engar athugasemdir bárust við tillöguna á auglýsingatíma. Greinargerð vegna útgáfunnar fylgir aftast í starfsleyfinu, sbr. 6. gr. reglugerðar 550/2018.

Ákvörðun Umhverfisstofnunar um útgáfu starfsleyfis er kæranleg til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála innan eins mánaðar frá birtingu ákvörðunar stofnunarinnar skv. 1. mgr. 65. gr. laga nr. 7/1998, um hollustuhætti og mengunarvarnir, sbr. 4. gr. laga nr. 130/2011, um úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála.

Tengd skjöl
Ákvörðun um endurnýjun á starfsleyfi Öggs ehf.
Starfsleyfi Öggs ehf.