Stök frétt


Norræna ráðherranefndin, vinnuhópur um líffræðilega fjölbreytni og menningarminjar (NBM),  opið er fyrir umsóknir um styrki 2021. Umsóknarfrestur er til  6. júní 2020. 

Á hverju ári styrkir norræni vinnuhópurinn NBM, norræn samstarfsverkefni sem stuðla að því að stöðva missi á líffræðilegum fjölbreytileika og menningarminjum.
Verkefni sem hljóta styrk eiga að stuðla að því að ná markmiði kafla 5.3, Umhverfi og líffræðileg fjölbreytni, í samstarfsáætluninni um umhverfis- og loftslagsmál.   
NBM mun árið 2021 meðal annars veita styrki til verkefna um líffræðilega fjölbreytni, menningarminjar og loftslagsstarf. Verkefnin eiga að stuðla að því að tryggja að tekið sé tillit til líffræðilegrar fjölbreytni, menningarminja og vistkerfaþjónustu í loftslagsstarfinu.   

Nánari upplýsingar og umsóknareyðublöð má nálgast hér á heimasíðunni Norrænt samstarf