Þvotta- og hreinsivörur

Allt í kringum okkur eru efni sem koma góðum notum í okkar daglega lífi, bæði í efnablöndum og hlutum. Sum innihaldsefni geta þó verið varasöm og skaðleg heilsu manna og umhverfis. Þess vegna er það besta sem við getum gert að draga úr notkun efna. Oft erum við bara að nota efni af vana en ekki vegna þess að þau eru nauðsynleg.

Mörg þvotta- og hreinsiefni geta verið ertandi og jafnvel ætandi, eins og t.d. efni notuð í uppþvotta- og þvottavélar auk ýmissa sértækra hreinsiefna. Því skal ætíð geyma hreinsiefni þar sem börn ná ekki til. Hreingerning með hreinsiefnum skilur alltaf eftir efnaleifar í umhverfinu og eru smábörn útsettari fyrir þessum efnaleifum en fullorðnir því þau skríða um á gólfinu. Því minna sem notað er af hreinsiefnum því minna fá börnin í sig af þessum efnum.

Sum þvottaefni innihalda efni sem safnast fyrir í náttúrunni sem er bagalegt því hreinsiefni sem við notum við að þrífa bíla, bað, vaska, ofl.  og þvottaefni úr þvottavélum enda í niðurföllunum og flytjast með frárennsli ómeðhöndlað út í sjó.

Gólfsápur innihalda mismunandi bón- og vaxefni og aðrar vörur efni til að fjarlægja bón og vax. Þessar vörur eru notaðar til að vernda gólf fyrir sliti og gera þrifin á þeim auðveldari en innihaldsefni þeirra geta verið skaðleg umhverfinu. Dæmi um slík efni í þvotta- og hreinsivörum eru PFAS, síloxön og musk-xýlen ilmefni.

Þvottaefni fyrir fatnað o.þ.h. eru gerð úr mörgum mismunandi efnum með ólíka eiginleika. Auk efnanna, sem eiga að losa óhreinindin úr þvottinum, eru sett ónauðsynleg efni í mörg þvottaefni t.d. ilmefni. Ilmefni í þvottaefnum geta valdið ofnæmi, sama á við um mýkingarefni. Athugið að mýkingarefnin eru ekki nauðsynleg til að hreinsa þvott.

Notið minna!

Góð leið til að minnka áhrif hreinsiefna á heimilum er einfaldlega að nota minni skammta. Hægt er að prófa sig áfram með því að minnka skammtinn hægt og rólega og halda sig við þann minnsta skammt sem gefur góðan árangur. Á Íslandi er vatnið steinefnasnautt (mjúkt) en minna þvottaefni þarf í slíkt vatn heldur en í steinefnaríkt (hart) vatn. Reynslan hefur sýnt að fólki hættir til að nota allt of stóra þvottaefnaskammta. Með minni skammtastærðum fer minna af efnum út í umhverfið og á sama tíma sparast peningar sem er gott fyrir heimilisbókhaldið.

Veljið umhverfismerktar vörur!

Veljum umhverfisvænar vörur t.a.m. Svaninn eða Evrópublómið. Við framleiðslu á þeirra er tekið tillit til bæði heilsu og umhverfis. Vörurnar innihalda eins lítið af hættulegum efnum og unnt er að komast af með og við framleiðslu þeirra er losun á hættulegum efnum og gróðurhúsaloftegundum í lágmarki. Athugið að vörurnar geta verið með ilmefnum sem geta valdið ofnæmi, best er því að velja ilmefnalausar umhverfismerktar vörur.

Geymið þar sem börn og gæludýr ná ekki til!

Hættulegustu efnin eiga að vera merkt með hættumerki inn í rauðum þríhyrningi. Allar vörur merktar á þann hátt á að geyma þar sem börn og gæludýr ná ekki til. Jafnvel þótt umbúðirnar séu með loki sem börn eiga ekki að getað opnað, þá er ekki alveg hægt að treysta á að þeim takist það ekki.

Notið trefjaklúta!

Á síðustu árum hafa komið fram nýjar vörur sem draga úr þörfinni á hreinsiefnum. Klútar, moppur og aðrar vörur úr örþráðum nýta yfirborðsspennu til að draga í sig ryk og óhreinindi og eru algjörlega án hreinsiefna. Til eru margar tegundir af klútum fyrir mismunandi tegundir af óhreinindum. Engin hættuleg efni eru í þeim, en hins vegar eru notuð efni við framleiðsluna, t.d. litarefni, sem geta verið skaðleg heilsu og umhverfi. Einstaka klútar innihalda silfur en það hefur bakteríudrepandi áhrif. Silfur getur verið skaðlegt fyrir umhverfið og getur valdið því að bakteríur verða ónæmar fyrir sýklalyfjum. Það er gott ráð að forðast alveg að kaupa klúta sem innihalda silfur sem ætti að vera auðvelt vegna þess að þeir eru sérstaklega merktir.

Tengt efni

Reglugerð nr. 300/2014 um þvotta- og hreinsiefni

Þvotta- og hreinsiefni á heimasíðu Evrópusambandsins