Um þjóðgarðinn

Snæfellsjökulsþjóðgarður er staðsettur á utanverðu Snæfellsnesi á Vesturlandi. Hann er 183km2 að stærð og fyrsti þjóðgarður landsins sem nær að sjó. 

Snæfellsjökulsþjóðgarður var stofnaður 28. júní árið 2001 í þeim tilgangi að vernda bæði sérstæða náttúru svæðisins og merkilegar sögulegar minjar. Jafnframt er markmiðið að auðvelda fólki að ferðast um svæðið og kynnast því.

Starfsemi 

Snæfellsjökulsþjóðgarður er opinn allt árið. Sjö starfsmenn eru í föstu starfi, þjóðgarðsvörður, þjónustustjóri, yfirlandvörður, þjónustufulltrúi, verkamaður og landverðir. Á sumrin starfa landverðir við fræðslu, viðhald og eftirlit í þjóðgarðinum og við upplýsingagjöf á gestastofu á Malarrifi.

Starfsmenn þjóðgarðsins hafa einnig umsjón með friðlöndunum Búðahrauni, ströndinni við Arnarstapa-Hellnar og náttúruvættinu Bárðarlaug við Hellnar.

Skrifstofa 

Skrifstofa þjóðgarðsins á Hellissandi er að jafnaði opin allt árið á skrifstofutíma en þar er ekki föst viðvera.  

Snæfellsjökulsþjóðgarður

Starfsfólk