Stök frétt

Í dag afhenti Helgi Jensson forstöðumaður Framkvæmda- og eftirlitssviðs hjá Umhverfisstofnun ásamt Tindi Hafsteinssyni sölustjóra hjá Tæknival Guðlaugu Árnmarsdóttir stórglæsilega og umhverfisvæna Fujitsu Siemens tölvu frá Tæknival.

Guðlaug var dregin úr stórum hópi fólks sem tók þátt í umhverfisvænum Svansleik sem stóð yfir síðastliðnar tvær viku á vegum Umhverfisstofnunar, Morgunblaðsins, Tæknivals og Rásar 2.

Við þökkum öllum fyrir sem tóku þátt og Guðlaugu óskum við kærlega til hamingju með verðlaunin.