Stök frétt

Starfsmaður frá Heilbrigðiseftirliti Suðurnesja kannaði aðstæður við strandstað Wilson Muuga miðvikudaginn 18. apríl vegna olíunnar sem fór í sjóinn þegar skipið var dregið af strandstað. Samkvæmt mati hans var ekki um bráðahættu að ræða.

Í dag fóru fulltrúar frá UST ásamt starfsmanni Heilbrigðiseftilitsins á vettvang til að meta umfang nauðsynlegra hreinsunaraðgerða. Hreinsa þarf olíu úr fjörunni og fjarlægja nokkuð af þangi/þara á takmörkuðu svæði fyrir sunnan Gerðakotstjörn. Hreinsun verður framkvæmd um helgina.