Stök frétt

Mynd: CHUTTERSNAP á Unsplash

Umhverfisstofnun hefur nú sérstakt eftirlit með innflutningi á möndlum og möndluafurðum frá Bandaríkjunum. Myglueitur, aflatoxín, hefur verið að mælast í bandarískum möndlum. Innflutningur er einungis heimilaður að uppfylltum ákveðnum skilyrðum samkvæmt auglýsingu nr. 945/2007.

Innflytjendur verða að framvísa vottorði frá opinberum aðila sem sýnir að aflatoxín B1 og önnur aflatoxín séu undir leyfilegum mörkum samkvæmt reglugerð 439/2005 um gildistöku tiltekinna gerða Evróusambandsins um aðskotaefni í matvælum . Vottorðið þarf að vera þannig útbúið að hægt sé að rekja það til viðkomandi sendingar. Einnig skal fylgja með heilsuvottorð fyrir innflutning vöru frá þriðju ríkjum inn í Evrópska efnahagssvæðið.

Ef ofangreint skilyrði er ekki uppfyllt þá er farið fram á sýnatöku og rannsókn á kostnað innflytjenda