Stök frétt

Mynd: Patrick Reijnders

Alls hafa 312 minkar veiðst frá því minkaveiðiátakið á Snæfellsnesi og í Eyjafirði hófst í janúar sl. Alls verður varið 135 milljónum króna til átaksins sem standa á yfir til ársloka 2009.

Eins og sést á veiðitölum meðfylgjandi töflu veiddist óvenjuhátt hlutfall af læðum í vorveiði, eða allt að helmingi fleiri en hingaðtil. Nánari niðurstöður af veiði ársins munu liggja fyrir í lok nóvember.