Stök frétt

Höfundur myndar: Þorsteinn Jóhannsson

Umhverfisstofnun hefur fest kaup á tveimur nýjum svifryksmælum sem í síðustu viku voru settir upp á Akureyri. Annar mælirinn var settur upp við hlið gamla mælisins við Tryggvabraut en hinn var settur upp við leikskólann Flúðir.

Mælarnir eru af nýrri kynslóð loftgæðamæla, mjög fullkomir og fyrirferðalitlir. Úr gamla mælinum komu aðeins upplýsingar um sólahringsmeðaltal og lágu niðurstöður ekki fyrir fyrr en mörgum dögum eftir hverja mælingu. Gögn frá nýju mælunum uppfærast hinsvegar á 10 mínútna fresti á netinu.

Einnig er veðurstöð sambyggð nýju mælunum en það gefur möguleika á að samkeyra mengunar og veðurupplýsingar og fá þannig munn gleggri mynd úr hvaða átt mesta mengunin er að koma á hverjum stað.

Það var Gróco ehf sem flutti mælana inn en þeir eru framleiddir í Austurríki. Verkfræðistofan Vista sér svo um birtingu mæligagna á netinu.

Þessa dagana fara fram stillingar og prufukeyrslur en þegar því lýkur verða gögn frá mælunum aðgengileg.


Krakkarnir á leikskólanum Flúðum fylgjast með uppsetningu mælisins af áhuga. Þorsteinn Jóhannsson, sérfræðingur Umhverfisstofnunar í loftgæðamálum, tók myndirnar.