Stök frétt

Höfundur myndar: Snævarr Guðmundsson

Að þessu sinni verður sumarsólstöðuganga Þjóðgarðsins Snæfellsjökuls föstudaginn 19.júní kl. 21 í samvinnu við Ferðafélag Íslands og verður gengið upp á Jökulinn að norðanverðu. Gert er ráð fyrir að ferðin taki í heild um 4-6 klst. Góður útbúnaður er nauðsynlegur en ferðin er 3ja skóa ferð samkvæmt stöðlum Ferðafélags Íslands. Skráning er hjá Ferðafélagi Íslands í s. 568-2533, verð 4.000 kr. Nánari upplýsingar fást einnig hjá Þjóðgarðinum Snæfellsjökli í símum 436-6888 og 436-6860.

Þeim tilmælum er beint til ökumanna vélknúinna ökutækja að vera ekki á ferð á Jöklinum á sama tíma og gangan er (frá kl. 21-02).