Stök frétt

Næturganga um sólstöður, sem farin var á Snæfellsjökul að kvöldi 19. júní sl., tókst afar vel. Gangan var samstarfsverkefni Þjóðgarðsins Snæfellsjökuls og Ferðafélags Íslands. Alls fór 251 göngugarpur alla leið upp. Veðrið lék við göngufólk og aðstæður voru afar góðar.

Að þessu sinni var gengið upp norðvesturhlið jökulsins, frá bílastæði á Harðabala upp af Eysteinsdal. Margir göngumanna höfðu áður farið á jökulinn en ekki þessa leið. Toppnum var náð rétt fyrir klukkan hálf tvö. Á leiðinni niður voru göngumenn baðaðir miðnætursólinni sem var að koma upp og litaði umhverfið og snjóinn appelsínugulan. Fjöldi þátttakenda í ferðinni er Íslandsmet í fjallgöngu og aldrei hafa fleiri tekið þátt í jöklagöngu sem einn hópur.