Stök frétt

Umhverfisstofnun boðar til almenns kynningarfundar um tillögu að endurnýjuðu starfsleyfi fyrir Elkem Ísland ehf. (áður Íslenska járnblendifélagið hf.).

Á fundinum verður framsaga af hálfu Umhverfisstofnunar þar sem tillagan verður kynnt og jafnframt hafa forsvarsmenn Elkem Ísland óskað eftir að koma að sínum sjónarmiðum. Fundargestum mun gefast kostur á að koma með athugasemdir og bera upp spurningar.

Fundurinn mun fara fram í félagsheimilinu Fannahlíð, Hvalfjarðarsveit, kl. 20 fimmtudaginn 2. júlí næstkomandi.

Athugasemdir við umsókn eða tillögu skulu vera skriflegar og sendar Umhverfisstofnun. Frestur til að skila inn athugasemdum er til 23. júlí 2009.

Allir velkomnir.

Starfsleyfistillaga fyrir Elkem