Stök frétt

Höfundur myndar: www.unsplash.com

Veiðitimabil á grágæs og heiðagæs hefst í dag fimmtudaginn 20. ágúst. Helsingja er leyfilegt að veiða frá 1. september utan Skaftafellssýslna en þar má ekki veiða helsingja fyrr en 25. september. Tilgangur friðunar á helsingja í Skaftafellssýslum er að vernda þann varpstofn sem hefur verið að ná fótfestu á undanförnum árum. Helsingi verpir ekki á Íslandi nema í Skaftafellssýslum svo vitað sé og þykir því sérstök ástæða til þess að veiðimenn sýni aðgát á þessu svæði.

Blesgæs er áfram friðuð eins og undanfarin ár. Eins og fram kom í frétt á mbl.is í gær eru vísbendingar um að tekið hafi fyrir fækkun blesgæsa eftir veiðbann. Grágæsastofnin er áætlaður 100.000 einstaklingar sem er svipað og 2007, heiðagæsastofnin 350.000 einstaklingar og helsingjastofnin 70.000 einstaklingar.

Endurnýjun veiðikorta

Veiðimenn eru minntir á að endurnýja veiðikort sín enda er einungis heimilt að stunda skotveiðar á fuglum sé veiðikort meðferðis. Hægt er að endurnýja veiðikortið á vefsíðu Umhverfisstofnunar.

Skil á fuglamerkjum

Sérstök ástæða er til að hvetja veiðimenn til að skila inn merkjum ef þeir veiða merkta fugla. Upplýsingarnar sem merkin veita eru mikilvægar fyrir rannsóknir á þessum veiðistofnum. Merkjunum á að skila til:

Náttúrufræðistofnun  íslands

Fuglamerkingar

Pósthólf 5320

125 Reykjavík

 

Upplýsingar um hvað þarf að fylgja með fuglamerkjum er að finna í Veiðidagbókinni sem fylgir veiðikortinu en einnig má fá upplýsingar í síma 590 0500 hjá Nátturfræðistofnun Íslands

Skil á gæsavængjum

Nú í ár eins og undafarin ár munu Arnór Þ. Sigfússon og Halldór W. Stefánsson á austurlandi safna og skoða gæsa- og andavængi til að meta hlutfall unga frá sumrinu. Vilji menn senda inn vængi skulu þeir senda vængi sömu megin af öllum fuglunum, t.d. hægri væng. Nánari upplýsingar um þetta má sjá á bls. 48 í Veiðidagbókinni 2009 eða í símum 843 4924 (Arnór) og á austurlandi 471 2553 (Halldór).