Stök frétt

Umhverfisráðherra boðar til VI. Umhverfisþings dagana 9.-10. október 2009. Þingið fer fram á Hótel Hilton Reykjavík Nordica. Sjálfbær þróun verður aðalumfjöllunarefni þingsins að þessu sinni. Kynntar verða tillögur að nýjum áherslum stjórnvalda á sviði sjálfbærrar þróunar næstu árin. Einnig verður kynnt ný skýrsla umhverfisráðherra um stöðu og þróun umhverfismála.

Þátttaka er ókeypis en gestum þingsins gefst kostur á að kaupa hádegisverð á hótelinu föstudaginn 9. október. Dagskrá þingsins og frekari upplýsingar um þingið verða birtar þegar nær líður. Nauðsynlegt er að skrá þátttöku á heimasíðu umhverfisráðuneytisins eða í síma 5458600 fyrir 1. október.