Stök frétt

Málstofa um hljóðvist í leik- og grunnskólum verður haldin föstudaginn 25. september 2009 kl. 12:00 – 16:00. Málstofan verður haldin í Háskóla Íslands við Stakkahlíð (áður Kennaraháskóli) í Bratta, salur í nýbyggingu. Gengið er inn frá Háteigsvegi. Með hljóðvist er átt við ómtíma og hljóðstig í umhverfi, t.d. í kennslustofu. Hljóðvist skiptir máli fyrir hlustunarskilyrði og upplifun fólks á hljóðum í umhverfinu. Í málstofunni verður skoðað hvaða kröfur eru gerðar í lögum, reglugerðum og stöðlum til hljóðvistar í leik- og grunnskólum. Fjallað verður um áhrif hávaða á heilsu, einbeitingu og hlustun. Greint verður frá niðurstöðum hávaðamælinga í leik- og grunnskólum og nokkrir kennarar munu segja reynslusögur úr sínum skólum.

Boðið verður upp á léttan hádegisverð kl. 12:00.

Dagskráin verður túlkuð á táknmál.

Hávaði í umhverfi barna hefur áhrif á heilsu þeirra, líðan og einbeitingu

Dagskrá málstofunnar hefst kl 12:30.

Börn frá leikskólanum Klömbrum munu syngja nokkur lög með táknum.

Þeir sem ætla að mæta á málstofuna í Stakkahlíð eru vinsamlegast beðnir að tilkynna þátttöku sína á ust@ust.is eigi síðar en 23. sept. n.k.

Aðgangur ókeypis

Hægt verður að fylgjast með málstofunni í beinni útsendingu á sjonvarp.khi.is. Málstofan er í Bratta.

Einnig verður hægt að nálgast hana síðar hér á vefsvæði Umhverfisstofnunar.

Það eru Umhverfisstofnun, umhverfisráðuneytið, Skipulagsstofnun, Vinnueftirlitið og Heyrnar- og talmeinastöð Íslands sem standa fyrir málstofunni.