Stök frétt

Umhverfisstofnun auglýsir tillögu að starfsleyfi fyrir Carbon Recycling International ehf. til að endurvinna koldíoxíð úr útblæstri í Svartsengi, Grindavíkurbæ.

Rekstraraðila verður heimilt að vinna metanól úr allt að 16 tonnum á dag af koldíoxíði en það mun þýða að framleiðslan nemi allt að 10 tonnum á dag af endanlegri vöru.

Við samningu á tillögunni var tekið tillit til þess að verksmiðjan er á ýmsan hátt á tilraunastigi, enda þótt sumt henni viðkomandi sé vel þekkt tækni, eins og rafgreining á vatni til að framleiða vetni. Lögð er áhersla á að öll geymsla og meðferð á metanóli verði í góðu horfi og að haldin verði rekstrarhandbók sambærileg þeim sem er gerð krafa um í starfsleyfum olíubirgðastöðva. Í þessu sambandi eru gerðar kröfur um ástandsskoðun, lekavarnir, þrýstiprófanir og þess háttar.

Gefinn er árs frestur til að koma með endanlega útfærslu á hreinsum alkóhóls úr frárennsli og þar er horft til þess að útfærsla slíkrar hreinsunar er einmitt hluti af því sem tilraunin á að fjalla um. Umhverfisstofnunin telur ekki að umhverfi stafi hætta af því því að leyfa óhreinsaðri fráveitu að fara í jarðveginn í takmarkaðan tíma. Metanól brotnar hratt niður auk þess sem svæðið er jafnframt þegar raskað vegna jarðvarmavirkjunar í Svartsengi.

Einnig má nefna kröfu um að notaðir hvatar fyrir efnahvörf séu sendir í endurvinnslu.

Tillagan ásamt umsókn mun liggja frammi á bæjarskrifstofu Grindavíkurbæjar að Víkurbraut 62 í Grindavík á tímabilinu 23. október til og með 18. desember 2009. Nánari grein er gerð fyrir tillögunni í greinargerð sem fylgir fréttinni. Frestur til að skila inn athugasemdum er til 18. desember 2009 og skulu þær sendar til Umhverfisstofnunar og vera skriflegar.

Umhverfisstofnun mun halda kynningarfund í Saltfisksetrinu í Grindavík þann 3. nóvember næstkomandi kl. 18:00 þar sem tillagan verður kynnt og að því loknu gefst fundargestum kostur á að koma með athugasemdir eða bera upp spurningar.

Skjöl

Tillaga að starfsleyfi Carbon Recycling International

Greinargerð með tillögu að starfsleyfi

Umsókn um starfsleyfi

Bréf með umsókn um starfsleyfi

Tilkynning til ákvörðunar um matsskyldu framkvæmda

Álit Skipulagsstofnunar vegna ákvörðunar um matsskyldu