Stök frétt

Umhverfisstofnun auglýsir tillögu að starfsleyfi fyrir Norðurskel ehf. til kræklingaræktar og lirfusöfnunar í Eyjafirði. Í tillögunni er lagt til að rekstraraðila sé heimilt að rækta krækling og safna lirfum á fjórum stöðum í firðinum samkvæmt meðfylgjandi kortum í viðaukum starfsleyfisins ásamt hnitum þar sem staðsetningar koma nánar fram. Staðirnir eru við sunnanverða Hrísey, í Reitsvík og við Rauðuvík. Á fjórða svæðinu, frá Dagverðareyri og að Brávöllum fer fram lirfusöfnun.

Við gerð tillögunnar var helst horft til áhrifa á vatnsgæði, fjarlægð frá annarri starfsemi og að vel yrði gengið frá öllum útbúnaði. Þá er farið fram á að áhrif á sjávarbotn séu metin á a.m.k. fimm ára fresti.

Tillagan ásamt umsókn mun liggja frammi á skrifstofu Akureyrarbæjar, Geislagötu 9, á tímabilinu 27. nóvember 2009 til 22. janúar 2010, á skrifstofu Hríseyjar við Hólabraut í Hrísey og hjá Umhverfisstofnun á sama tíma. Frestur til að skila inn skriflegum athugasemdum er til 22. janúar 2010 og skulu þær sendar til Umhverfisstofnunar.

Skjöl