Stök frétt

Umhverfisstofnun hefur unnið starfsleyfistillögu til handa fiskeldisstöð Íslandsbleikju ehf. á Stað Grindavík. Þar er lagt til að rekstraraðila sé heimilt að framleiða allt að 1600 tonn á laxi og öðrum eldisfiski til manneldis.

Tillagan mun liggja frammi á skrifstofu sveitarfélagsins Grindavíkurbæ, á tímabilinu 25.nóvember 2010 til 20. janúar 2011. Umsagnarfrestur um tillöguna er til 20. janúar 2011. Umsagnir um tillögurnar skal senda á Umhverfisstofnun og skulu þær vera skriflegar.