Stök frétt

Umhverfisstofnun hefur unnið tillögu að starfsleyfi fyrir móttökustöð Íslenska gámafélagsins ehf. að Berghólabraut 5, Reykjanesbæ. Samkvæmt tillögunni verður heimilt að taka á móti allt að 5.000 tonnum af úrgangi á ári til meðhöndlunar, þ.e. flokkunar, forvinnslu, umhleðslu, pökkunar og geymslu. Samkvæmt tillögunni verður gildistími starfsleyfis til næstu sextán ára.

Tillagan, ásamt starfsleyfisumsókn og fylgigögnum, mun liggja frammi til kynningar í afgreiðslu Reykjanesbæjar, Tjarnargötu 12, Reykjanesbæ, til 18. maí 2011.

Starfsleyfistillögu og önnur gögn má einnig sjá hér að neðan. Öllum er frjálst að gera athugasemdir við starfsleyfistillöguna en þær skulu vera skriflegar, undirritaðar með nafni og heimilisfangi og sendar Umhverfisstofnun.



Frestur til að skila inn athugasemdum er til 18. maí 2011.

Skjöl

Tillaga að starfsleyfi
Umsókn um starfsleyfi
Deiliskipulag
Teikningar