Stök frétt

Þeir sem hyggjast leggja leið sína í Hornstrandafriðlandið snemmsumars þurfa að hafa eftirfarandi í huga:

Reglur Hornstrandafriðlands kveða á um að ferðamenn þurfi að tilkynna um ferðir sínar á tímabilinu 15. apríl til 15. júní. Ástæðan fyrir því er nauðsyn þess að hafa yfirsýn yfir ferðir ferðamanna á umræddu tímabili en þá er náttúra svæðisins hvað viðkvæmust (fugla- og dýralíf) og þolir lítið rask eða truflun.  Svæðið er þá að koma undan snjó og yfirleitt  mjög blautt yfirferða. Jafnframt er oft kalt á svæðinu á umræddum tíma, ekki síst jarðkuldi (tjöld). Ekki er æskilegt að margir og/eða fjölmennir hópar fari um svæðið á umræddu tímabili. Landeigendur eru undanþegnir þessu ákvæði.

Ferðamenn þurfa að gera sér grein fyrir því að fáir, ef nokkrir eru á svæðinu á umræddu tímabili. Jafnframt hefur ástand svæðisins og öryggisbúnaður ekki verið tekinn út og því óvissa um ástand neyðarskýla, talstöðva o.s.frv. 

Talsverður snjór getur verið í fjallaskörðum og þau jafnvel verið ófær (háir, lóðréttir skaflar í brúnum). Vöð á ám gætu hafa breyst yfir vetrartímann og óvissa um ástand brattra fjallastíga (einstiga). 

Fara þarf varlega á tjaldsvæðum, jafnt vegna bleytu svo og vegna sinu (varlega með eldunaráhöld). Flestir kamrar eru fergðir yfir vetrartímann (hurðir). Gæta þarf þess að loka þeim tryggilega þegar tjaldsvæði eru yfirgefin. Ekkert skal skilja eftir sig á svæðinu. Fara skal varlega í blautum stígum og gæta þess að troða þá ekki út eða mynda nýja stíga. 

Brýnt er að fara varlega í nágrenni varpsvæða fugla og við refagreni. Ekki skal dvelja á slíkum stöðum eða skilja eftir sig mat eða annað sem veldur truflun. Dýralíf er viðkvæmt á þessum tíma og styggist auðveldlega.

Af og til koma hvítabirnir á svæðið með Grænlandsísnum. Þó slíkar heimsóknir séu ekki mjög tíðar, þarf að fylgjast vel með umhverfinu og ummerkjum (slóð) eftir dýrin. Tilkynna skal strax til lögreglu ef björns verður vart á svæðinu og forðast ber að nálgast dýrið. 

Landvörður fer um svæðið í maí og kannar aðstæður. Brýnt er að slíku eftirliti sé lokið áður en ferðamenn leggja leið sína um svæðið. 

Símanúmer Hornstrandastofu er 591 2000.