Stök frétt

Höfundur myndar: Ríkharður Fr. Friðriksson

Umhverfisstofnun barst í gær tilkynning um olíumengun á ströndinni við Garðskaga. Fulltrúi frá Heilbrigðiseftirliti Suðurnesja kannaði svæðið bæði í gær og í dag og var það niðurstaða hans og Umhverfisstofnunar að mengunin sé ekki þess eðlis að ástæða sé til að fara í hreinsunaraðgerðir, um er að ræða lítið magn af olíu, svæðið muni jafna sig á einhverjum dögum og ekki verða skaði af. Hætta er á raski og skemmdum sem verður við hreinsunaraðgerðir og því betra að olían skolist burt með flóðum ef mögulegt er. Heilbrigðisfulltrúi Suðurnesja mun fara og skoða aðstæður aftur eftir hádegið en þá mun annað flóð hafa gengið yfir.