Stök frétt

Á vegum Félag stjórnsýslufræðinga og Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála í samstarfi við Félag forstöðumanna ríkisstofnana og Evrópustofu verður málþingið Evrópusambandið og íslensk stjórnsýsla: Hver eru áhrif regluverks ESB og umsóknarferlis Íslands að sambandinu á íslenskar stofnanir og sveitarfélög? haldið fimmtudaginn 18. okt kl. 12 - 14:15 á Grand hótel Reykjavík.

Hádegisverður frá kl. 12- dagskrá hefst 12:15

Þátttökugjald kr. 5400.-, hádegisverður innifalinn.

Dagskrá:

  1. Setning og opnunarávarp.
        Eggert Ólafsson, formaður Félags stjórnsýslufræðinga.
  2. Dr. Anamarija Musa kennari í opinberri stjórnsýslu við lagadeild Háskólans í Zagreb, Króatíu.
        Umbætur í stjórnsýslu Króatíu í tengslum við inngöngu landsins í ESB.
  3. Dr. Baldur Þórhallsson, prófessor við Stjórnmálafræðideild HÍ.
        Evrópuvæðing íslenskrar stjórnsýslu - samanburður við hin Norðurlöndin. Kynning á niðurstöðum rannsóknar.
  4. Frá sjónarhóli sveitarfélaga
         Eiríkur B. Björgvinsson, bæjarstjóri á Akureyri frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga
  5. Frá sjónarhóli ríkisstofnana
        Kristin Linda Árnadóttir, forstjóri Umhverfisstofnunar
        Hrafnkell V. Gíslason, forstjóri Póst- og fjarskiptastofnunar

Eftir framsögur verða panelumræður með frummælendum og með þátttöku Stefáns Hauks Jóhannessonar sendiherra og aðalsamningamanns vegna viðræðna um aðild Íslands að ESB.

Fundarstjóri: Svavar Halldórsson, stjórnmála- og stjórnsýslufræðingur.

Evrópusamruninn hefur haft afgerandi áhrif á þróun íslensks samfélags í gegnum aðildina að Evrópska efnahagsvæðinu á þeim tveimur áratugum sem liðnir eru frá því að Ísland gerðist aðili að EES. Það á ekki síst við um starfsemi og áherslur íslenskrar stjórnsýslu og opinberra stofnana á báðum stjórnsýslustigum. Umsóknarferli Íslands að sambandinu mun hafa í för með sér breytingar á stjórnsýslunni og þá ekki síður kjósi Ísland að ganga í Evrópusambandið.

Á fundinum verður m.a. leitað svara við eftirfarandi spurningum:

  • Að hvaða leyti hefur EES samningurinn, innleiðing regluverks ESB í íslensk lög og umsóknarferli Íslands að ESB haft áhrif á og leitt til breytinga á áherslum og verkefnum íslenskrar stjórnsýslu, hjá ríki, sveitarfélögum og opinberum stofnunum?
  • Hefur það leitt til framfara fyrir starfsemina og málaflokkinn eða haft neikvæð áhrif á þróun starfsins?
  • Hver er reynsla Norðurlandanna?
  • Hver er reynsla ríkis sem fær væntanlega aðild að ESB á næsta ári?

Frekari upplýsingar má finna á vef Stofnunar stjórnsýslufræða og stjórnmála.