Stök frétt

Fuglar

Dúfnaveislan hófst á 15 skotvöllum víða um land mánudaginn 1. júlí og stendur til 31. ágúst. Reikna má með að um hátt í 10 þúsund veiðikortahafar muni ganga til veiða á næstu mánuðum, en sannir veiðimenn temja sér ákveðnar siðareglur í umgengni sinni við náttúruna og umhverfi sitt og ein af þeim siðareglum er ástundun skotæfinga. Veiðimaður sem vill hitta bráð sína þarf að vera einbeittur, í formi, fær um að meta fjarlægðir og meðvitaður um eiginleika vopna sinna og skotfæra og því eru veiðimenn hvattir til að nýta sér þennan viðburð til að kynnast því sem félög víða um land hafa uppá að bjóða. 

Á vormánuðum 2011 fór Umhverfisstofnun í samstarfsverkefnið „Dúfnaveislan 2011“ með Skotveiðifélagi Íslands (SKOTVÍS) og ýmsum félögum sem reka skotvelli auk styrktaraðila. Tilgangur dúfnaveislunnar var að hvetja veiðimenn um land allt til að kynna sér þá aðstöðu sem skotvellirnir hafa upp á að bjóða, stunda reglulegar skotæfingar áður en veiðitímabilið hefst og undirbúa sig eins og best verður á kosið. 

Þetta er þriðja árið sem þessi viðburður er haldinn og Umhverfisstofnun mun áfram koma að málum sem snúa að bættri veiðimenningu á Íslandi og halda áfram góðu samstarfi við SKOTVÍS í þeim efnum.