Stök frétt

Tillaga um verndar- og stjórnunaráætlun fyrir náttúruvættið Hverfjall (Hverfell) í Mývatnssveit er hér með auglýst og óskað er eftir athugasemdum. 

Frestur til að skila athugasemdum er til og með 25. nóvember 2013 og skal þeim skilað í gegnum heimasíðu Umhverfisstofnunar. Nánari upplýsingar veitir Bergþóra Kristjánsdóttir starfsmaður umhverfisstofnunar í Mývatnssveit í síma 591-2000 eða ust@ust.is.

Fulltrúar Umhverfisstofnunar, Skútustaðahrepps og Landeiganda hafa unnið að gerð tillögu að verndar- og stjórnunaráætlunarinnar undanfarin misseri. 

Hverfjall (Hverfell) var friðlýst sem náttúruvætti með auglýsingu þann 22. júní 2011. Markmiðið með friðlýsingu Hverfjalls (Hverfells) sem náttúruvættis er verndun sérstæðra jarðmynda. Jafnframt er það markmið með friðlýsingunni að varðveita jarðmyndanir svæðisins vegna mikils fræðslu- og útivistargildis. Gígurinn er vinsæll viðkomustaður ferðamanna sem fara um Mývatnssveit. 

Í áætluninni er fjallað um nauðsynlegar verndaraðgerðir, landvörslu og landnýtingu, s.s. aðgengi ferðamanna að svæðinu, stígagerð og uppbyggingu þjónustumannvirkja. 

Til að tryggja að verndargildi svæðisins rýrni ekki er nauðsynlegt að byggja upp innviði þess og fræða gesti, bæði um þær umgengnisreglur sem þar gilda og svæðið sjálft, því þekking leiðir til virðingar og virðing til verndunar. 

Tengd skjöl