Stök frétt

Höfundur myndar: Kristinn Már Ársælsson

Umhverfisstofnun hefur unnið tillögu að starfsleyfi fyrir urðunarstað Sorpurðunar Vesturlands hf. að Fíflholtum, Borgarbyggð. Samkvæmt tillögunni verður heimilt að taka á móti og urða allt að 15 þúsund tonn af úrgangi á ári og að gera tilraunir með endurnýtingu flokkaðs úrgangs í samráði við útgefanda starfsleyfis og eftirlitsaðila. Rekstur urðunarstaðarins verður því með sama sniði og verið hefur. Samkvæmt starfsleyfistillögunni verður gildistími starfsleyfis til næstu 14 ára. 

Tillagan, ásamt starfsleyfisumsókn og fylgigögnum, mun liggja frammi til kynningar í afgreiðslu Ráðhúss Borgarbyggðar, Borgarbraut 14, Borgarnesi, til 23. janúar 2014. Starfsleyfistillögu og önnur gögn má einnig nálgast á heimasíðu Umhverfisstofnunar. 

Öllum er frjálst að gera athugasemdir við starfsleyfistillöguna en þær skulu vera skriflegar, undirritaðar með nafni og heimilisfangi og sendar Umhverfisstofnun. 

Frestur til að skila inn athugasemdum er til 23. janúar 2014.

Tengd skjöl