Stök frétt

Umhverfisstofnun hefur gefið út endurnýjað starfsleyfi fyrir fiskimjölsverksmiðju Ísfélags Vestmannaeyja hf. á Þórshöfn. Starfsleyfið veitir rekstraraðila heimild til að framleiða fiskimjöl og lýsi úr fiski, afskurði og öðrum fiskúrgangi í verksmiðjunni. Verksmiðjunni er einnig heimil loðnuflokkun og hrognataka og að nýta í framleiðslu sína frákast frá þeirri vinnslu. Starfsleyfið gildir ekki um aðra vinnslu fiskafurða eða rekstur vélaverkstæðis. 

Hámarksafköst verksmiðjunnar eru óbreytt og miðuð við að framleitt verði úr allt að 950 tonnum af hráefni á sólarhring. Í leyfinu er ákvæði til bráðabirgða um að heimilt verði að framleiða úr allt að 1.100 tonnum af hráefni ef Skipulagsstofnun úrskurðar að sú aukning teljist ekki vera matsskyld breyting. 

Umhverfisstofnun auglýsti opinberlega tillögu að starfsleyfi á tímabilinu 3. apríl til 29. maí 2013. Tillagan var einnig send til umsagnar hjá Heilbrigðisnefnd Norðurlands eystra og Ísfélags Vestmannaeyja hf. Þá lá tillagan frammi í ofangreindan tíma á skrifstofu Langanesbyggðar ásamt umsóknargögnum. Engin umsögn barst Umhverfisstofnun á auglýsingartíma, eða ósk um að haldinn væri kynningarfundur um tillöguna. 

Helsta breyting á útgefnu leyfi frá auglýstri tillögu er að efri mörk fyrir ferskleika hráefnis (TVN gildi) eru lækkuð úr 120 mg N /100 g í 100 mg N /100 g. Það endurspeglar auknar kröfur gegn lyktarmengun sem Umhverfisstofnun gerir til fiskimjölsverksmiðja. Ef rekstraraðili fer yfir þessi mörk þarf hann að meta veðurfar, sérstaklega vindstyrk og stefnu og forðast vinnslu þegar vindátt er að byggð, ásamt því að tilkynna slíkt tilvik til Umhverfisstofnunar eins fljótt og mögulegt er. Það er leiðrétt að heimild leyfisins nær til vinnslu 950 tonna hráefnis á sólarhring, en ekki 1200 tonn sem var tilgreint í auglýstri tillögu. Einnig var bætt við heimild til loðnuflokkunar og hrognatöku og að nýta í framleiðslu sína frákast frá þeirri vinnslu. 

Nokkrar minni orðalagsbreytingar voru einnig gerðar.

Starfsleyfið öðlast þegar gildi og gildir til 31. janúar 2030. Með gildistöku þessa starfsleyfis fellur úr gildi eldra starfsleyfi verksmiðjunnar frá 7. október 2002 sem gefið var út af Hollustuvernd ríkisins.