Stök frétt

Umhverfisstofnun hefur unnið tillögu að starfsleyfi fyrir spilliefnamóttöku Efnamóttökunnar, Hafnarfirði. Samkvæmt tillögunni verður heimilt að taka á móti allt að 7.900 tonnum af spilliefnum, raftækjum og öðrum úrgangi á ári til meðhöndlunar. Samkvæmt starfsleyfistillögunni verður gildistími starfsleyfis til næstu 16 ára. 

Tillagan, ásamt starfsleyfisumsókn og fylgigögnum, mun liggja frammi til kynningar í í Ráðhúsi Hafnarfjarðar, Strandgötu 6, Hafnarfirði, til 10. júlí 2015. Starfsleyfistillögu og önnur gögn má einnig nálgast á heimasíðu Umhverfisstofnunar. Öllum er frjálst að gera athugasemdir við starfsleyfistillöguna en þær skulu vera skriflegar, undirritaðar með nafni og heimilisfangi og sendar Umhverfisstofnun. 

Frestur til að skila inn athugasemdum er til 10. júlí 2015.