Stök frétt

Veiðar á grágæsum og heiðagæsum hefjast fimmtudaginn 20. Ágúst næstkomandi. Upphafi veiðinnar er hinsvegar seinkað á austursvæði Vatnajökulsþjóðgarðs til 1. september. Ætla má að fjöldi veiðimanna muni halda til veiða fyrstu dagana, sérstaklega þeir sem ætla að veiða heiðagæsir. Veiðimenn eru í ljósi þessa minntir á áðurnefnda seinkun veiðinnar á austursvæði Vatnajökulsþjóðgarðs. Þrátt fyrir að víða sé heimilt að hefja grá- og heiðagæsaveiðar 20. ágúst er fjöldi veiðimanna sem fer ekki til gæsaveiða fyrr en eftir mánaðarmótin en þá hefst andaveiðitímabilið.

Veiðimenn eru sérstaklega minntir á að óheimilt er að skjóta ófleyga fugla en í upphafi veiðitímabilsins má búast við að rekast á ófleyga unga, sérstaklega á svæðum þar sem varp hefur farið seint af stað. Einnig er ástæða til að minna á alfriðun blesgæsarinnar en hún hefur verið friðuð síðan 2006 og að veiðar á helsingja í Austur– og Vestur–Skaftafellssýslum hefjast ekki fyrr en 25. september en hér má sjá veiðtímabil þeirra fugla sem heimilt er að veiða.