Stök frétt

Umhverfisstofnun hefur unnið tillögu að starfsleyfi fyrir Hólaskóla á Hólum í Hjaltadal til framleiðslu á allt að 14 tonnum af bleikjuhrognum, bleikjuseiðum og bleikju á Hólum í Hjaltadal.

Tillagan mun liggja frammi á skrifstofu Sveitafélagsins Skagafjörður á tímabilinu 19. maí til 14. júlí 2016. Á vef Umhverfisstofnunar  má finna auglýsta tillögu Umhverfisstofnunar og umsóknargögn.

Umhverfisstofnun hefur ekki áform um að halda almennan kynningarfund um tillöguna á auglýsingatíma, en mun endurskoða þá ákvörðun ef eftir því verður óskað.

Frestur til að gera athugasemdir um starfsleyfistillöguna er til 14. júlí 2016.

Tengd skjöl