Stök frétt

Veiðar á grágæsum og heiðagæsum hefjast laugardaginn 20. ágúst næstkomandi. Upphafi veiðinnar er hinsvegar seinkað á austursvæði Vatnajökulsþjóðgarðs til 1. september. Ætla má að fjöldi veiðimanna muni halda til veiða fyrstu dagana, sérstaklega þeir sem ætla að veiða heiðagæsir. Veiðimenn eru í ljósi þessa minntir á áðurnefnda seinkun veiðinnar á austursvæði Vatnajökulsþjóðgarðs. Þrátt fyrir að víða sé heimilt að hefja grá- og heiðagæsaveiðar 20. ágúst er fjöldi veiðimanna sem fer ekki til gæsaveiða fyrr en eftir mánaðarmótin en þá hefst andaveiðitímabilið.

Veiðimenn eru sérstaklega minntir á að óheimilt er að skjóta ófleyga fugla en í upphafi veiðitímabilsins má búast við að rekast á ófleyga unga, sérstaklega á svæðum þar sem varp hefur farið seint af stað. Einnig er ástæða til að minna á alfriðun blesgæsarinnar en hún hefur verið friðuð síðan 2006 og að veiðar á helsingja í Austur– og Vestur–Skaftafellssýslum hefjast ekki fyrr en 25. september en hér má sjá veiðtímabil þeirra fugla sem heimilt er að veiða.

Þeir veiðimenn sem hyggjast til veiða um helgina en eru ekki búnir að endurnýja veiðikortið geta afgreitt sig sjálfir á netinu ef þeir greiða með kreditkorti. Þá er farið inn á Þjónustugáttina – Mínar síður. Til að komast inn á sitt svæði nota menn svo annað hvort rafrænt skilríki eða Íslykil. Íslykilinn er hægt að panta í ferlinu og er hann þá sendur í heimabanka. Þeir sem greiða veiðikortið með kreditkorti geta verið komnir með rafrænt veiðikort í símann innan nokkurra mínútna. Inni í Þjónustugáttinni – Mínum síðum getur veiðimaðurinn alltaf séð stöðu sína gagnvart veiðikortinu og fengið sent rafræna veiðikortið ef hann hefur týnt því.