Stök frétt

Mikill fjöldi ferðamanna hefur heimsótt náttúruvættið Skógafoss í hlýindum og vætutíð síðustu vikna sem hefur gert það að verkum að álag á göngustíga þar er gríðarlegt. Umhverfisstofnun hefur gripið til þess ráðs að loka einstaka göngustígum vegna aurbleytu og til að draga úr skemmdum á gróðri meðfram stígum þar sem gengið er utan þeirra.

Á Skógaheiði eru framkvæmdir hafnar við uppbyggingu göngustíga og á meðan er stígurinn þar lokaður.