Stök frétt

Umhverfisstofnun boðar til opins kynningarfundar um niðurstöður eftirlits og umhverfisvöktunar fyrir Rio Tinto Íslandi, Straumsvík, þriðjudaginn 13. júní í Hafnarborg, klukkan 16:00. 

Í starfsleyfum tiltekinna stærri fyrirtækja er kveðið á um að boða skuli til opins kynningarfundar um umhverfisvöktun og losun af völdum starfseminnar. Allir velkomnir.

Dagskrá fundarins:

  • G. Stella Árnadóttir frá Umhverfisstofnun kynnir áherslur og fyrirkomulag í eftirliti stofnunarinnar.
  • Einar Halldórsson frá Umhverfisstofnun kynnir niðurstöður eftirlits og mælinga á losun álversins.
  • Erindi frá nýsköpunarmiðstöð Íslands um niðurstöður umhverfisvöktunarinnar við Straumsvík.
  • Guðrún Þóra Magnúsdóttir frá Rio Tinto Íslandi flytur erindi.
  • Umræður að loknum framsögum.

Skjöl:
Grænt bókhald 2016
Skýrsla Ísal viðaukar
Skýrsla Rio Tinto 2016
Umhverfisstofnun Hvaleyrarholti 2016
Viðhaldsskýrsla sumar 2016
Viðhaldsskýrsla des 2016