Stök frétt

Að gefnu tilefni vill Lögreglustjórinn á Vestfjörðum og Umhverfisstofnun vekja athygli á að umferð vélknúinna farartækja utan vega og merktra slóða er bönnuð innan friðlandsins á Hornströndum, nema leyfi Umhverfisstofnunar komi til, samkvæmt 2. gr. auglýsingar nr. 332/1985, um friðland á Hornströndum.

Um viðurlög vegna brota á reglum þessum fer eftir ákvæðum XV. kafla laga nr. 60/2013, um náttúruvernd.

Mörk friðlandsins eru þessi:

Úr botni Hrafnsfjarðar um Skorarheiði í botn Furufjarðar. Mörkin fylgja Skorará frá ósi og í Skorarvatn. Þaðan liggja þau meðfram suðurströnd vatnsins, en síðan í beina línu úr suðausturhluta þess og í upptök þeirrar kvíslar, sem næst er vatninu og fellur í Furufjarðarós. Miðast mörkin við hugsaða línu 200 m fyrir sunnan kvíslina og síðan ámóta vegalengd sunnan Furufjarðaróss allt til sjávar í Furufjörð.