Stök frétt

Teiknistofan Landslag ehf er tilnefnd til Rosa Barba Landscape Prize fyrir hönnun á tröppustíg upp á Saxhól í Þjóðgarðinum Snæfellsjökli. Þjóðgarðurinn er á vegum Umhverfisstofnunar sem er verkkaupi.

Í fréttatilkynningu frá teiknistofunni Landslagi ehf segir m.a. að verðlaunin verði veitt á ráðstefnu í Barcelona í lok september í tengslum við  Landslagarkitektúrtvíæringinn í Barcelóna sem nú er haldinn í tíunda sinn. Alls séu 9 verkefni hvaðanæva úr heiminum tilnefnd, tvö frá Kína auk verkefna frá Frakklandi, Grikklandi, Íslandi, Ísrael, Ítalíu, Mexíkó og Sviss.

Saxhóll hefur þrisvar sinnum verið tilnefndur til innlendra og erlendra verðlauna á líðnu ári, Hönnunarverðlauna Íslands, Nordic Architecture Fair Award og Menningarverðlauna DV. Auk þess var verkið valið sem fulltrúi íslenskrar hönnunar á ráðstefnu í Stokkhólmi síðastliðið vor, Architecture and Design The Nordic Way. Tilnefningin í Barcelóna er ein mesta viðurkenning sem íslenskir landslagsarkitektar hafa hlotið.

Saxhóll er vinsæll viðkomu- og útsýnisstaður yst á Snæfellsnesi í Þjóðgarðinum Snæfellsjökli. Hóllinn er 45 metra hár keilulaga gígur með lausu og  lítt grónu gjalli í hlíðum. Gígurinn er nálægt þjóðveginum og þaðan er gott útsýni að jökli og yfir hraunbreiðurnar allt um kring. Með sívaxandi fjölda gesta hafði myndast ákveðið spor í spírallaga sneiðing upp hólinn og var tekið að skríða til, breikka og aflagast.  Laust yfirborðið var jafnfram óþægilegt og hættulegt yfirferðar. Smíðaður var tröppustígur úr svörtu stáli sem ryðgaði flótlega og samlagaðist litbrigðum hólsins. Stígurinn er lagður eftir sárinu sem komið var í hólinn og er settur saman úr tveimur bogum sem mætast á hvíldarpalli á miðri leið. Stígurinn er 160 metra langur og 1,5 metra breiður sem nægir til fólk geti mæst. Hvor bogi er samsettur úr þriggja metra löngum einingum. Hliðar stigans eru úr stífum stálplötum sem skorðast niður í gjallið. Einingar voru festar saman í eina samfellu og engra annarra undirstaða var þörf. Reynslan af tröppustígnum er sú að gestir halda sig alfarið á sporinu og hættan á myndun nýrra leiða virðist úr sögunni.

Viðurkenningarnar eru hvati til hönnuða og framkvæmdaraðila til faglegra vinnubragða við hönnun og uppbyggingu á ferðamannastöðum á Íslandi.

Sjá nánar hér:

https://www.facebook.com/Barcelonalandscapebiennial/photos/a.282876965190598.1073741826.281939131951048/1356551557823128/?type=3&theater

https://bcnlandscapebiennial.wordpress.com/