Stök frétt

Umhverfisstofnun hefur nú lagt fram til kynningar tillögu að friðlýsingu vatnasviðs Jökulfalls og Hvítár í Árnessýslu: 32 Gýgjarfossvirkjun og 33 Bláfellsvirkjun á grundvelli flokkunar svæðisins í verndarflokk verndar- og orkunýtingaráætlunar, sbr. ályktun Alþingis nr. 13/141, frá 14. janúar 2013.

Lögð er fram tillaga að auglýsingu um friðlýsingu svæðisins og kort þar sem tillaga að mörkum svæðisins er dregin upp. 

Tillagan byggir á 53. gr. náttúruverndarlaga nr. 60/2013. 

Forsendur afmörkunar

Hér háttar þannig til að nokkur fjöldi af öðrum virkjunarkostum neðar í ánni hefur verið lagður fram til umfjöllunar í rammaáætlun. Ráðuneytið telur eðlilegt að þeir virkjunarkostir fái meðferð skv. lögum nr. 48/2011 og því verður farvegur Hvítár ekki friðlýstur til sjávar að svo komnu máli. Í ljósi skilgreiningar á áhrifasvæði virkjunarkosta er talið rétt að friðlýsa árfarveginn niður að efstu orkumannvirkjum virkjunarkosta í ánni sem komið hafa til umfjöllunar í rammaáætlun, þ.e. í þessu tilfelli að lóni fyrirhugaðrar Búðartunguvirkjunar eins og hún var kynnt í 3. áfanga rammaáætlunar.  

Því er lagt til að verndarsvæði vegna Hvítár/Jökulfalls sé vatnasvið ofan stíflumannvirkja fyrrum fyrirhugaðrar Bláfellsvirkjunar og meginfarvegur Hvítár þar fyrir neðan, 500 m út frá miðlínu til beggja handa, að efstu mörkum fyrirhugaðs lóns Búðartunguvirkjunar eins og hún var kynnt í 3. áfanga rammaáætlunar. Mörk svæðisins fylgi jökuljaðri. 

Þar sem vatnasvið Gýgjarfossvirkjunar er hluti af vatnasviði Bláfellsvirkjunar er lagt til að friðlýst verði eitt samfellt svæði sem nær til vatnasviða beggja þessara virkjunarkosta.

 

Frestur til að skila athugasemdum

Frestur til að skila athugasemdum er til og með 14. desember 2018. Að kynningartíma loknum tekur Umhverfisstofnun saman umsögn um framkomnar athugasemdir við tillöguna og vísar tillögu að friðlýsingarskilmálum til ráðherra. Athugasemdum má skila á heimasíðu Umhverfisstofnunar, með tölvupósti á netfangið ust@ust.iseða senda með pósti til Umhverfisstofnunar, Suðurlandsbraut 24, 108 Reykjavík. 

Frekari upplýsingarveita Ingibjörg Marta Bjarnadóttir (ingibjorg.bjarnadottir@umhverfisstofnun.is), Sigrún Ágústsdóttir (sigruna@umhverfisstofnun.is) og Hildur Vésteinsdóttir (hildurv@umhverfisstofnun.is) með tölvupósti eða í síma 591-2000.