Stök frétt

Mynd: Unsplash

Umhverfis- og auðlindaráðuneytið hefur auglýst hreindýraveiðikvóta ársins 2022.

Umhverfisstofnun annast sölu hreindýraveiðileyfa. Umsóknarfrestur er til og með mánudeginum 28.febrúar en umsóknum skal skilað inn á vef Umhverfisstofnunar www.ust.is/veidimenn.  Útdráttur verður auglýstur síðar.

Heimilt er að veiða allt að 1021 hreindýr árið 2022, 546 kýr og 475 tarfa. Þessi fjöldi er með fyrirvara um að ekki verði verulegar breytingar á stofnstærð fram að veiðum. Samkvæmt gjaldskrá nr. 309/2018 er veiðileyfagjaldið kr. 150.000 fyrir tarf og kr. 86.000 fyrir kú. Veiðileyfagjaldið greiðist eigi síðar en 15. apríl.

Veiðitími tarfa er frá 15. júlí til og með 15. september. Á tímabilinu 15. júlí til 1. ágúst er veiði á törfum einungis heimiluð að því tilskildu að þeir séu ekki í fylgd með kúm og að veiðarnar trufli ekki kýr og kálfa í sumarbeit.

Veiðitími kúa er frá 1. ágúst til og með 20. september. Þeim eindregnu tilmælum er beint til veiðimanna að fyrstu tvær vikur veiðitíma skulu veiðimenn og leiðsögumenn í lengstu lög forðast að fella mylkar kýr og veiða af fremsta megni geldar kýr. Þessum tilmælum er ætlað að draga úr áhrifum veiða á kálfa og stuðla að því að kálfar verði ekki móðurlausir fyrir 12 vikna aldur.
Í því skyni að draga úr líkum á að hreindýrin á veiðisvæði 9 leiti milli sauðfjárveikivarnarhólfa yfir í Öræfasveit skulu dýr Suðursveitar, 18 tarfar og 22 kýr, veidd á Breiðamerkursandi og fjalllendi þar eftir fremsta megni.

Á tímabilinu 1. nóvember til og með 20. nóvember eru veiðar á kúm heimilaðar á svæðum átta og níu. Í umsókn um veiðileyfi er valið um veiði á hefðbundnum veiðitíma eða nóvemberveiðitíma.

Veiðiheimildir árið 2022 skiptast sem hér segir eftir veiðisvæðum og kyni dýra:

Frétt umhverfis- og auðlindaráðuneytisins um hreindýrakvóta ársins 2022 má sjá hér.