Stök frétt

Umhverfisstofnun hefur fellt úr gildi starfsleyfi Thorsil ehf. í Helguvík fyrir rekstur kísilverksmiðju. Starfsleyfið var gefið út hinn 6. febrúar 2017 en engin starfsemi er á svæðinu.

Ákvörðun Umhverfisstofnunar um niðurfellingu starfsleyfis er kæranleg til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála innan eins mánaðar frá birtingu ákvörðunar, skv. 65. gr. laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir, sbr. 4. gr. laga nr. 130/2011 um úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála.