Stök frétt

Ræðum saman og ákveðum hver kaupir flugelda fyrir hópinn í ár / Mynd: Unsplash

Flugeldar eru aldrei umhverfisvænir eða skaðlausir en þörfin fyrir flugelda fer minnkandi með nýjum hugsunarhætti. Íslendingar eru nú mun meðvitaðri um þessi skaðlegu áhrif flugelda. Flestir huga að því að endurmóta sínar áramótahefðir þannig að allir geti tekið þátt án þess að heilsa manna og umhverfis hljóti skaða af.  

Hvað er hægt að gera til að halda umhverfisvænni áramót? 

Besta leiðin er auðvitað að sleppa flugeldum alveg og leyfa öðrum hefðum að fá stærra hlutverk í staðinn.

Fyrir þá sem vilja stilla notkun í hóf væri sniðugt að ræða við sinn áramótahóp og ákveða hver kaupir flugelda fyrir hópinn ár. Þannig er hægt að minnka magnið sem er skotið upp.   

Snúast áramótin okkar um flugelda eða snúast þau um samveru? 

Það getur verið erfitt að greina á milli þess hvað gerir áramótin okkar sérstök en oftast eru flugeldarnir ekki aðalatriðið. 

Gefum gömlum- og nýjum hefðum stærra hlutverk í áramótahaldinu okkar. Við Íslendingar eigum ríkar hefðir sem gera gamlárskvöld sérstakt óháð flugeldum. Sumar fjölskyldur heimsækja brennur, aðrar setja sér áramótaheit og enn aðrar syngja burt árið – eða öskra það burt!

Geta allir tekið þátt í þinni áramótahefð? 

Tengt efni: