Frétt

Mynd: Skarphéðinn G. Þórisson
Eindagi greiðslu úthlutaðs hreindýraveiðileyfis er í dag, þriðjudaginn 19. apríl. Greiða þarf kröfu í heimabanka fyrir kl. 21.00. Þeir sem ekki greiða kröfuna fyrir tilskilinn tíma hafna þar með úthlutuðu leyfi. 

Krafa frá Ríkissjóðsinnheimtu er í heimabanka þeirra sem hafa fengið úthlutun, ekki voru sendir út greiðsluseðlar. Ef umsækjendur finna ekki kröfuna má millifæra eftir neðangreindum upplýsingum en það þarf að gerast áður en greiðslufrestur rennur út.

Tryggast er samt að umsækjandi borgi útsenda kröfu, en ef er millifært þarf að senda bankakvittun á netfangið joigutt@ust.is.

Reikningsnúmer:  0001-26-25335  
Kennitala móttakanda:  5402696459
Upphæð greiðslu:  86.000 fyrir kú, 150.000 fyrir tarf
Skýring greiðslu:  Kennitala þess sem er með úthlutað leyfi

Mikilvægt er að greiða ekki á síðustu stundu og fylgjast með því að greiðslur sem hafa verið settar í sjálfvirkar greiðslur á eindaga greiðist.

Fljótlega eftir að greiðslufrestur rennur út er ógreiddum leyfum endurúthlutað til næstu umsækjenda á biðlista.