Veiðifrétt

22.07.2020 08:56

22. júlí 2020

Þá er nú að liðin vika af hreindýraveiðunum. Búið er að fella 44 tarfa. Erfiðlega hefur gengið að finna tarfana á sv. 4. Þegar maður horfir út um gluggann núna virðist þokan ætla að stíða mönnum eitthvað alla vega fyrri part dags. Ólafur Gauti með einn mann á sv. 1, Jón Magnús með einn mann á sv. 2, fellt vestan við Þrælaháls, Frosti með einn mann á sv. 7, Eiður Gísli með einn á sv. 7, fellt við Fagrahvamm.
Til baka