Umhverfistofnun - Logo

Á Vestfjörðum

Gengið með landvörðum sumarið 2022 - Frítt að taka þátt

JÚNÍ

Surtarbrandsgil – Frá 15. júní - Alla daga nema mán og föst – kl. 13

Sýning um Surtarbrandsgil í gamla prestbústaðnum á Brjánslæk er opin daglega á tímabilinu 15. júní – 15. ágúst.

Í tengslum við opnunartíma sýningarinnar er boðið upp á göngur í fylgd landvarðar í gilið.

Vatnsfjörður - Ganga á Lónfell - 11. júní kl. 13

Farið verður frá skilti sem markar upphaf gönguleiðarinnar á Dynjandisheiði eða frá Helluskarði eftir því hvar best er að geyma bíla út frá vegagerð á svæðinu (nánar auglýst síðar).

Fjallið Lónfell er gjarnan nefnt skírnarfontur Íslands þar sem leiddar hafa verið líkur að því að hér sé komið fjallið hvaðan Hrafna-Flóki horfði þegar hann nefndi landið Ísland svo sem segir í Landnámu. Fleiri fjöll hafa þó verið kölluð til og sýnist sitt hverjum.

Það sama má segja um örnefnið Lónfell. Heitir fjallið kannski Lómfell? Útsýnið er stórkostlegt, um það eru allir sammála.

  • Vegalengd: 5-6 km
  • Hækkun: 300 m
  • Tími: 4 klst.
  • Búnaður: Góðir skór, fatnaður eftir veðri og nesti. Gaman að hafa sjónauka.

Hornstrandatofa - opin virka daga

Gestastofa friðlandsins á Hornströndum - Hornstrandastofa – er staðsett á torginu á Ísafirði.

Hún er opin 6 daga vikunnar og eru allir velkomnir þangað óháð því hvort þeir eru á leiðinni inn á friðlandið eða ekki.

Gestir innan friðlands eru hvattir til að nálgast landverðina sem eru tilbúnir til að fjalla um það sem fyrir augum ber hverju sinni.

JÚLÍ

Surtarbrandsgil - Alla daga nema mán og föst – kl. 13

Sýning um Surtarbrandsgil í gamla prestbústaðnum á Brjánslæk er opin daglega á tímabilinu 15. júní – 15. ágúst.

Í tengslum við opnunartíma sýningarinnar er boðið upp á göngur í fylgd landvarðar í gilið.

Vatnsfjörður - Ganga á Ýsufell - 3. júlí kl. 13

Ýsufell er nyrst Hornatáa, kórónu Vatnsfjarðar. Gangan hefst við Helluskarð, sem leið liggur á toppinn og aftur til baka.

Fjallið er 703 m hátt og gangan er talsvert grýtt og miðlungs krefjandi. 

  • Vegalengd: 3,5 km
  • Hækkun: 250 m
  • Tími: 4 klst.
  • Búnaður: Góðir skór, fatnaður eftir veðri og nesti. Gaman að hafa sjónauka.

Látrabjarg - Verstöðin Brunnar - 16. júlí kl. 13

Fræðslan hefst við bílastæðið á Brunnum. Landvörður gengur um svæðið og segir frá minjum. Tæpt verður á útræði frá Brunnum, lífi og aðbúnaði vermanna, sjóslysum og hrakförum en frá verstöðinni var róið fram til ársins 1900.   

  • Tími: 0,5-1 klst.
  • Búnaður: Fatnaður eftir veðri.

Vatnsfjörður - Jarðsaga svæðis - Hörgsnes - 23. júlí kl. 15

Fræðsla landvarðar verður haldin í beinu framhaldi af göngu í Surtarbrandsgil þennan dag en gestir þurfa þó ekki að mæta í báðar göngur samhengisins vegna. Á Hörgsnesi má m.a. virða fyrir sér digra kletta og vel sniðin trjábolaför og velta því fyrir sér hvernig þetta varð allt til. 

  • Vegalengd: 500-700 m
  • Hækkun: óveruleg
  • Tími: 1 – 1,5 klst
  • Búnaður: Góðir skór og fatnaður eftir veðri. Gaman að hafa sjónauka

Hornstrandatofa - opin virka daga

Gestastofa friðlandsins á Hornströndum - Hornstrandastofa – er staðsett á torginu á Ísafirði.

Hún er opin 6 daga vikunnar og eru allir velkomnir þangað óháð því hvort þeir eru á leiðinni inn á friðlandið eða ekki.

Gestir innan friðlands eru hvattir til að nálgast landverðina sem eru tilbúnir til að fjalla um það sem fyrir augum ber hverju sinni.

ÁGÚST

Surtarbrandsgil - Til 15. ágúst - Alla daga nema mán og föst – kl. 13

Sýning um Surtarbrandsgil í gamla prestbústaðnum á Brjánslæk er opin daglega á tímabilinu 15. júní – 15. ágúst.

Í tengslum við opnunartíma sýningarinnar er boðið upp á göngur í fylgd landvarðar í gilið.

Vatnsfjörður - Ganga á Lónfell - 6. ágúst kl. 13

Farið verður frá skilti sem markar upphaf gönguleiðarinnar á Dynjandisheiði eða frá Helluskarði eftir því hvar best er að geyma bíla út frá vegagerð á svæðinu (nánar auglýst síðar).

Fjallið Lónfell er gjarnan nefnt skírnarfontur Íslands þar sem leiddar hafa verið líkur að því að hér sé komið fjallið hvaðan Hrafna-Flóki horfði þegar hann nefndi landið Ísland svo sem segir í Landnámu. Fleiri fjöll hafa þó verið kölluð til og sýnist sitt hverjum.

Það sama má segja um örnefnið Lónfell. Heitir fjallið kannski Lómfell? Útsýnið er stórkostlegt, um það eru allir sammála.

  • Vegalengd: 5-6 km
  • Hækkun: 300 m
  • Tími: 4 klst.
  • Búnaður: Góðir skór, fatnaður eftir veðri og nesti. Gaman að hafa sjónauka.

Látrabjarg - Geldingsskorardalur og strand togarans Dhoon - 13. ágúst kl. 13

Landvörður leiðir göngu frá bílastæðinu við Geldingsskorardal að bjargbrún og fræðir gesti um strand togarans Dhoon í desember 1947. Þeir sem vilja geta gengið lengra og endað göngu sína á Bjargtöngum, hinir snúa til baka á bílastæði. Athugið að þeir sem ganga eftir bjargbrún geta skilið bíla sína eftir þar og fengið far hjá landverði

  • Vegalengd: 2 km
  • Tími: 1-2 klst. 
  • Búnaður: Fatnaður eftir veðri

Hornstrandatofa - opin virka daga

Gestastofa friðlandsins á Hornströndum - Hornstrandastofa – er staðsett á torginu á Ísafirði.

Hún er opin 6 daga vikunnar og eru allir velkomnir þangað óháð því hvort þeir eru á leiðinni inn á friðlandið eða ekki.

Gestir innan friðlands eru hvattir til að nálgast landverðina sem eru tilbúnir til að fjalla um það sem fyrir augum ber hverju sinni.

SEPTEMBER

Dynandi - 16. september kl. 15 

Dagur íslenskrar náttúru – Dynjandi ofan frá. 

Lokið vinnuvikunni á föstudegi með því að ganga með landverði að Dynjanda og sjáið fossinn í öðru ljósi en flestir: ofan frá. Gangan hefst við áningarstæði ofan Kálfeyrarfoss í Dynjandisá.

  • Vegalengd: 4 km
  • Tími: 1,5-2 klst
  • Búnaður: Góðir skór og fatnaður eftir veðri.