Vinna við nýjar heimasíður Umhverfis- og orkustofnunar og Náttúruverndarstofnunar er í gangi. Heimasíða Umhverfisstofnunar er virk á meðan vinnunni stendur. Information in English

Eftirlit með plöntuverndarvörum á markaði 2025

Tilgangur og markmið:

  • Að ganga úr skugga um að plöntuverndarvörur sem eftirlitsþegi setur á markað séu með markaðsleyfi í gildi.
  • Að athuga hvort merkingar umbúða séu í samræmi við gildandi reglur þar um.

 

Framkvæmd og helstu niðurstöður:

Farið var í eftirlit í maí og júní 2025 hjá fyrirtækjum sem setja plöntuverndarvörur á markað. Úrtakið í eftirlitinu náði til 38 mismunandi plöntuverndarvörutegunda í heild. Allar plöntuverndarvörur sem fundust í sölu hjá fyrirtækjunum voru kannaðar með tilliti til markaðsleyfa, sbr. reglugerð nr. 544/2015 um plöntuverndarvörur og merkinga á umbúðum varanna, sbr. reglugerð nr. 415/2014 um flokkun, merkingu og umbúðir efna eða efnablandna, reglugerð nr. 544/2015 um plöntuverndarvörur og reglugerð nr. 1002/2014 um gagnkvæma viðurkenningu á tilteknum markaðsleyfum fyrir plöntuverndarvörum.

Eftirfarandi eftirlitsþegar féllu undir umfang verkefnisins:

Fyrirtæki:
Starfsemi:
Eco-Garden ehf.
Innflutningur, heildsala
Garðheimar Gróðurvörur ehf.
Innflutningur, heildsala, smásala
Grastec ehf.
Innflutningur, heildsala
Húsasmiðjan ehf.
Smásala
Kemi ehf.
Innflutningur, heildsala
NPK ehf.
Innflutningur, heildsala
Samhentir Kassagerð hf.
Innflutningur, heildsala
Streymi heildverslun ehf.
Innflutningur, heildsala

Samtals voru skoðuð 52 eintök af plöntuverndarvörum og þar af fundust eitt eða fleiri frávik við 13 vörur, sem gerir tíðni frávika um 25%. Öll frávikin voru vegna ófullnægjandi merkinga. Umhverfis- og orkustofnun gerði kröfur um úrbætur sem fyrirtækin hafa brugðist við með fullnægjandi hætti.